15 febrúar, 2007

Nýjasta nýtt í búðum í DK

Undanfarna daga hafa starfsmenn stórverslunarinnar Orion í verslunarmiðstöðinni Fields ekki haft undan við að afgreiða miðaldra og íturvaxna karlmenn. Þeir eru allir komnir til þess að versla sér nýjustu afurð Orion, karlmannsbrjóstarhaldarann (eða Herre BH). Sjá mynd hér að neðan:



Mynd: Hér má sjá fyrirsætuna Casper pósa með græjuna.

Með tilkomu þessara sílíkonhaldara eru öll saggy men's breast úr sögunni og allir miðaldra danskir karlmenn ganga sperrtir og stoltir um götur borgarinnar. Nú geta þeir hætt að styrkja líkamsræktarstöðvar með mánaðarlegum afborgunum og keypt sér þess í stað þessa bráðsniðugu nýjung fyrir aðeins 999 Dkr. Spurning hvenær þessi nýjung tröllríður Fróni?

Til allrar hamingju er ég ekki orðinn miðaldra....og ekki kominn með saggy men's breast....ennþá.

Hilsen,

Óli