08 desember, 2004

Samúðarkveðjur óskast!!!!

Já, fyrsta prófið er á föstudaginn og það er á dönsku. Er alveg ákveðin í því að fara á dönskunámskeið eftir jól, ég er nefnilega ekkert spes góð í að skrifa þetta hrognamál.
Skýrslan kláraðist að lokum og við skiluðum henni síðasta fimmtudag. Ég var fegin, það er ekkert grín að vera að skrifa skýrslu með fólki sem er á fyrsta misseri í háskóla.
Annars er lítið að frétta. Er að verða langt komin með jólagjafainnkaupin, og ætla að klára það sem ég get eftir prófið á þriðjudaginn. Og svo kem ég heim á miðvikudaginn eftir viku....jibbí!